Innlent

Vill birta upplýsingar

Einkavæðingarnefnd hefur borist erindi frá Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra um möguleika á því að birtar verði tillögur ráðgjafarfyrirtækisins Morgan Stanley um tilhögun á sölu Símans. Halldór lagði áherslu á það á Alþingi í gær að upplýsingar úr skýrslunni yrðu birtar opinberlega að því undanskildu að í henni væru trúnaðarupplýsinar gagnvart þriðja aðila sem ekki væri hægt að birta. Forsætisráðherra upplýsti þetta í svari við fyrirspurn frá Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanni Samfylkingarinnar. Jóhanna taldi að forsætisráðherra bæri að skýra hvers vegna leynd hvíldi yfir skýrslu Morgan Stanley.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×