Innlent

Fær ekki styrk í ár

Utanríkisráðuneytið hefur synjað beiðni Mannréttindaskrifstofu Íslands um styrk fyrir árið í ár. Áður hefur komið fram að loka þurfi skrifstofunni ef styrkurinn fáist ekki. Utanríkisráðherra segir utanríkisráðuneytið hafa óskað eftir breyttri skipan mála áður en hann varð utanríkisráðherra. Átta milljónir króna voru eyrnamerktar Mannréttindaskrifstofunni á fjárlögum þar til í fyrra þegar ríkisstjórnin ákvað að framvegis yrði upphæðinni úthlutað til mannréttindamála almennt og úthlutun yrði á forræði tveggja ráðuneyta, Mannréttindaskrifstofan gæti sótt þangað um styrki eins og aðrir. Dómsmálaráðuneytið veitti skrifstofunni síðan 2,2 milljónir í styrk í upphafi ársins en eins og áður sagði fékk skrifstofan ekkert framlag frá utanríkisráðuneytinu í ár og jafngildir þetta því að framlög til hennar hafi verið skorin niður um þrjá fjórðu. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, sagði á þingi í dag að þarna væri ríkisstjórnin að hefna sín vegna mjög málefnalegrar gagnrýni sem hefði komið frá stofnuninni í garð ríkisstjórnarinnar vegna fjölmiðlalaganna og annarra frumvarpa sem frá ríkisstjórninni hefðu komið. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að Mannréttindaskrifstofan skilaði ekki þeim álitum sem hentaði þeim meirihluta sem færi með völd í landinu. Því væri Davíð Oddssyni og Birni Bjarnasyni ekki skotaskuld úr því að leggja það niður sem ekki hentaði þeim. Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir að utanríkisráðuneytið hafi lagt til þessa skipan mála í við fjárlagagerð í mars í fyrra, það er áður en hann varð utanríkisráðherra. Hann benti á að ef menn litu á tímaröðina í þeim efnum þá væri það löngu fyrir þann tíma sem dylgjur nokkurra þingmanna gengju út á. Tímaröðin væri öfug þannig að dylgjurnar féllu um sjálfar sig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×