Innlent

Marijúana í togara í Hafnarfirði

Tollgæslan og lögreglan í Hafnarfirði fundu tæplega fimm grömm af marijúana við leit í færeyskum togara sem lá að bryggju við Óseyrarbryggju í Hafnarfjarðarhöfn. Eins fundust tól til neyslu kannabisefna. Togarinn er 120 tonn að stærð og er gerður út frá Klakksvík. Tólf manna áhöfn er á togaranum og voru þrír teknir til yfirheyrslu. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Hafnarfirði fyrir stundu voru yfirheyrslurnar langt á veg komnar og málið nærri upplýst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×