Innlent

Norðmönnum hótað málshöfðun

Norðmenn verða dregnir fyrir Alþjóðadómsstólinn í Haag vegna Svalbarða. Þessu hótar Davíð Oddsson utanríkisráðherra sem sakar þá um ítrekuð brot og misbeitingu meintra réttinda sinna á svæðinu. Í umræðum um utanríkismál á Alþingi í dag skýrði Davíð Oddsson frá því að undirbúningur málssóknar fyrir Alþjóðadómstólnum væri langt kominn. Ríkisstjórnin hefði ákveðið að undirbúa málsókn vegna ítrekaðra brota norskra stjórnvalda á Svalbarðasamningnum. Davíð sagði að um þverbak hefði keyrt í fyrra þegar norsk stjórnvöld hefðu komið í veg fyrir framlengingu síldarsamningsins og takmarkað með ólögmætum hætti síldveiðar á Svalbarðasvæðinu í því skyni að styrkja eigin stöðu og veikja stöðu hinna aðilanna að síldarsamningunum. „Slíkt misbeiting norskra stjórnvalda á meintum fullveldisréttindum sínum á Svalbarðasvæðinu er óásættanleg. Svo virðist að málsókn sé eina leiðin til að tryggja réttmæta hagsmuni Íslands á svæðinu, “ sagði Davíð. Davíð gaf það sterklega í skyn að hætt yrði við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en í utanríkisráðuneytinu liggur fyrir áætlun um að verja 600 milljónum króna til kosningabaráttunnar. Davíð sagði að áleitnar spurningar hefðu komið upp í huga hans varðandi kostnað við framboðið og setu Íslands í ráðinu á árunum 2009 og 2010. Ljóst væri að á brattan væri að sækja gegn keppninautum um sæti, en auk Íslands væru Austurríki og Tyrkland að keppa um þau tvö sæti sem tilheyrðu Vesturlandahópnum svonefnda. Davíð sagði að gera yrði ráð fyrir að þegar liði á kosningabaráttuna ykist harkan í henni enn frekar og þar með kostnaðurinn. Af þessum ástæðum öllum hefði framboð Íslands verið til skoðunar, en þeirri skoðun lyki á næstu vikum. „Ef halda á framboðinu áfram má ekki bíða mikið lengur með að hefja kosningabaráttuna af fullum krafti,“ sagði Davíð. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×