Innlent

Líklega ekki um morð að ræða

Líkið af manninum sem fannst á skeri út frá Stokkseyri um klukkan fimm í gærdag var af brasilíumanninum Ricardo Correra Dantas en hans hafði verið saknað síðan 2. apríl síðastliðinn. Ricardo Correra Dantes sást síðast ganga út af heimili þar sem hann dvaldi á Stokkseyri á þessum örlagaríka degi. Lögreglan á Selfossi segir málið vera í rannsókn en að svo stöddu bendi ekkert til að um morð hafi verið að ræða en lík hans verður krufið á næstu dögum. Morguninn sem Ricardo hvarf ætlaði hann ásamt fjölskyldunni sem hann bjó hjá að fara í kirkju á Selfossi en hann langaði að ganga fyrsta spölinn og vera síðan tekinn upp í á leiðinni. Fjölskyldan sá Ricardo hins vegar hvergi þegar hún ætlaði að sækja hann og þrátt fyrir ítarlega leit varð enginn var við hann þangað til í gær þegar lögreglunni barst tilkynning um lík af manni á skeri við Stokkseyri sem reyndist síðan vera Dantas.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×