Innlent

Lík brasilíumannsins fundið

Lík Brasilíumannsins Ricardo Correia Dantas fannst á laugardag í fjörunni á Stokkseyri. Tilkynnt var um hvarf Dantas 2. apríl síðastliðinn og leituðu björgunarsveitir lengi án árangurs. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var það göngukona sem fann líkið í fjörunni og tilkynnti til lögreglu. Líkið var flutt í líkhúsið á Barðastíg til krufningar en dánarorsök er enn ekki ljós.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×