Innlent

Fíkniefnadómar fyrir norðan

Sex voru dæmdir í fésektir og fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fjórum dómum Héraðsdóms Norðurlands eystra í gær. Lægsta sektin var 30 þúsund krónur og sú hæsta 150 þúsund. Þyngsti dómurinn hljóðaði upp á tveggja mánaða fangelsi og eins árs ökuleyfissviptingu. Í öllum málunum var um að ræða tiltölulega lítið magn efna, trúlega ætlað til eigin neyslu. Sá sem fékk hæstu sektina sat inni í fangelsi þegar félagi hans reyndi að smygla til hans rúmlega 2,5 grömmum af hassi í földu í tölvudrifi. Sá sem fangelsisdóminn hlaut á sér langan sakaferil og rauf skilorð með broti sínu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×