Innlent

Olíugjaldi mótmælt í dag

Fyrirhuguðu olíugjaldi verður mótmælt í Reykjavík í dag, en 1. júlí verður það hækkað þannig að verð á díselolíu hækkar verulega. Það eru ferðaklúbburinn 4X4, Félag hópferðaleyfishafa, Landssamband sendibílstjóra, Frami, stéttarfélag leigubílstjóra og Bifreiðastjórafélagið Átak sem standa fyrir mótmælunum. Mótmælendur ætla að safnast saman við Holtagarða klukkan fjögur og aka síðan að Alþingishúsinu þar sem yfirvöldum verður afhent mótmælaskjal félaga í fyrrnefndum félögum, en þeir skipta þúsundum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×