Kókaínkaupin undu upp á sig 9. maí 2005 00:01
Hugmynd um innflutning á 100 grömmum af kókaíni frá Rotterdam fór úr böndunum hjá blómasala í Keflavík og félögum hans þegar tekið var að hrinda henni í framkvæmd. Þeir sem fjármögnuðu kaupin vildu nota tækifærið og kaupa inn e-töflur. Aðalmeðferð í málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en alls eru sjö ákærðir fyrir innfluting eða hlutdeild í glæpnum. Söluandvirði efnanna er talið geta numið yfir þremur milljónum króna. Í ársbyrjun 2004 kom upp sú hugmynd hjá blómasalanum og ungum manni, hálfþrítugum kærasta dóttur konu blómasalans, að smygla til landsins 100 grömmum af kókaíni. Ung frænka blómasalans var með marokkóskum manni sem til þekkti í Rotterdam og átti að nýta samböndin. "Hann sagðist vera með pottþétta leið," sagði ungi maðurinn fyrir dómi, en báðir voru að eigin sögn í miklu rugli. Blómasalinn útvegaði læknadóp og sá ungi var í hasssölu til að fjármagna eigin neyslu. "Mér leið illa yfir skuldum og vildi losna við þær, þetta var skyndilausn," sagði sá ungi. Ungi maðurinn leitaði til kunningja síns, sem ákærður er ásamt fimmta manni, um fjármagn til kaupanna. Sá vildi hlutdeild í innkaupunum, lánaði unga manninum tæpar 400 þúsund krónur og lagði sjálfur til ámóta upphæð til e-töflukaupa. Blómasalinn átti ekki að fá annað en um 30 grömm af kókaíni, helminginn til eigin neyslu en restina ætlaði hann að selja. Pottþétta leiðin til innflutningsins var svo að senda efnin í pósti á blómabúðina. Blómasalinn og ungi maðurinn báru báðir að greiða hafi átt Marokkómanninum eina milljón fyrir aðstoð og milligöngu um kaup ytra. Ungi maðurinn lýsti því hvernig hann ásamt Marokkómanninum og liðlega tvítugri kærustu hans flugu til Hollands og dvöldu í fjóra daga í Rotterdam hjá vinkonu hennar. "Við hittum þessa sölumenn á hverjum degi, þeir voru einhverjir kunningjar, en ég veit ekkert hvað þeim fór á milli, skil ekki svona hrognamál," sagði hann og vísaði til þess að sölumennirnir og Marokkómaðurinn ræddust við á arabísku. Kaupin fóru fram heima hjá vini Marokkómannsins og svo var efnunum komið fyrir í útboruðum kertum sem svo voru send í pósti til Íslands. Sú leið virðist hafa verið ákveðin á síðustu stundu, eftir símtal við blómasalann. Þegar heim var komið tóku við angistarfullar vikur í bið eftir pakkanum að sögn ákærðu. Blómasalinn þorði svo ekki að sækja pakkann sjálfur, en sendi dóttur konunnar, kærustu unga mannsins, í staðinn. Ungi maðurinn tók pakkann og opnaði svo hjá vinunum sem fjármögnuðu kaupin. Þá kom í ljós að átt hafði verið við sendinguna. "Ég vissi strax hvað var þá að gerast og fór niður í blómabúð og sá að verið var að handtaka alla," sagði ungi maðurinn, sem við svo búið lét vinina sem fjármögnuðu vita. "Svo fór ég bara á rúntinn og beið eftir að vera tekinn," bætti hann við, en lögregla hafði fylgst með blómasalanum í nokkurn tíma og meðal annars hlerað síma hans. Frænkan, kona Marokkómannsins, er ákærð fyrir að hafa tekið við eiturlyfjagróða frá honum og kærasta unga mannsins, dóttir konu blómasalans, fyrir að hafa sótt dópið á pósthúsið. Hver ákærði reyndi að gera sem minnst úr sínum hluta í innflutningi kókaínsins og e-taflnanna sem fjallað var um í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Blómasali kvaðst bara hafa átt hugmynd að kókaínkaupum. Ungi maðurinn, kærasti dóttur konu blómasalans, kvaðst í raun hafa verið leiksoppur hans og hálfgert burðardýr. Marokkómaðurinn sem þekkti eiturlyfjasala í hjáverkum sagðist í raun bara hafa komið á tengslum kaupanda og seljanda. "Ég var bara í fríi í útlöndum með konunni minni," sagði hann og kvað greiðslu upp á rúmar 165 þúsund krónur frá eiturlyfjasalanum bara hafa verið lán frá vini. Peningana fékk hann í evruseðlum sama dag og kaupin áttu sér stað. Hann harðneitaði því líka að hafa átt að fá greidda milljón króna frá íslendingunum fyrir aðstoðina.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Ferðamenn koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Sjá meira