Innlent

Lítill drengskapur Gunnars

"Það er augljóst mál, að þingmaður sem nú vill styðja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forystu Halldórs Ásgrímssonar, á ekki heima í Frjálslynda flokknum," segir í yfirlýsingu sem samþykkt var á fundi miðstjórnar Frjálslynda flokksins um þá ákvörðun Gunnars Örlygssonar þingmanns að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Miðstjórnarmenn segja ákvörðun Gunnars um að ganga úr Frjálslynda flokknum koma þeim gjörsamlega í opna skjöldu og átelja Gunnar fyrir hana. "Það er jafnframt fullvíst að flokksmenn og kjósendur Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi og öðrum kjördæmum landsins voru ekki að kjósa þingmann fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Miðstjórn Frjálslynda flokksins telur það lýsa litlum drengskap af hálfu Gunnars Örlygssonar að nota fylgi kjósenda Frjálslynda flokksins til þess að styrkja ríkisstjórnina til verka þvert á hans eigin málflutning. Þá harmar miðstjórnin ávirðingar Gunnars í garð flokkssystkina sinna í Frjálslynda flokknum og telur þær ómaklegar."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×