Erlent

Lýsa yfir yfirburðasigri

Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn í Eþíópíu lýsti í morgun yfir yfirburðasigri í kjördæmi höfuðborgar landsins, Addis Ababa, í þingkosningunum í gær. Flokkurinn segist hafa fengið 20 af 23 sætum í kjördæminu. Þrátt fyrir þetta er búist við að flokkur forsætisráðherra landsins, Meles Zenawi, vinni meirihluta á þinginu sem 547 þingmenn eiga sæti á.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×