Hagræðingin að engu orðin 25. maí 2005 00:01
Hagræðingin sem heimilin í landinu náðu fram með uppgreiðslu yfirdráttarlána vegna endurfjármögnunar fasteignalána virðist að engu orðin. Skuldir vegna yfirdráttarlána eru nú jafnmiklar og fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaðnum. Merki um mikla neyslu, segir forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans. Í Vegvísi greiningardeildarinnar kemur fram að yfirdráttarlán heimilanna hafi náð fyrri hæðum. Frá því í lok febrúar hafa þau aukist um 2,2 milljarða króna en í lok apríl skulduðu heimilin ríflega 60 milljarða í yfirdráttalán. Eru þau þar með orðin jafnhá og þau voru fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaði. Í lok apríl í fyrra námu lánin rúmlega 55 milljörðum króna og er því ljóst að sú hagræðing sem heimilin náðu fram með uppgreiðslu yfirdráttalána vegna endurfjármögnunar fasteignalána virðist að engu orðin. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir þetta merki um að það sé mikil neysla í gangi. Þó sé ekki óhugsandi að þetta tengist að einhverju leyti fasteignamarkaðnum, þ.e. að fólk sé að tímabundið að brúa bil með yfirdráttarlánum. „Þetta bendir svolítið til þess að menn séu að falla í sama farið og gíra sig upp með skammtímalánum,“ segir Edda Rós Skuldir heimilanna hjá innlánsstofnunum námu alls tæplega 400 milljörðum í lok apríl og jukust um 20 milljarða á milli mánaða. Aukningin er að mestu rakin til íbúðalána landsmanna.
Innlent Viðskipti Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira