Ráðuneytið gekk of langt 10. júní 2005 00:01
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í gær úr gildi úrskurð dómsmálaráðuneytisins þess efnis að Lilju Sæmundsdóttur væri óheimilt að ættleiða barn frá Kína. Ráðuneytið studdist í úrskurði sínum við að Lilja gæti átt á hættu heilsubrest vegna offitu. Þá voru henni dæmdar 600.000 krónur í málskostnað. "Að því marki sem heilsufar hennar hefur verið metið verður að telja að það sé gott, en hvergi kemur fram í gögnum málsins að offita ógni heilsu hennar eða muni gera það næstu 20 árin," segir í dómnum og ráðuneytið er sagt hafa gengið allt of langt í ályktunum um hugsanlegan heilsubrest Lilju. "Maður er nú varla búinn að fatta þetta," sagði Lilja í gær, en kvaðst "ofboðslega glöð" yfir að fallist hafi verið á að ráðuneytið hafi ekki farið fram með eðlilegum hætti í máli hennar. Hún sagðist ætla að hugleiða næstu skref í góðu tómi með lögfræðingi sínum. Dómurinn féllst ekki á þá kröfu Lilju að að viðurkennt væri að hún uppfyllti skilyrði til að ættleiða. "Mat á því hvort stefnandi uppfylli þessi skilyrði, sem hefði þýðingu fyrir hana að lögum, heyrir undir dómsmálaráðuneytið sem tekur afstöðu til þess samkvæmt lögum um ættleiðingar og öðrum reglum," segir í dómnum.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira