Tíma sóað fyrir þrjósku og hroka 10. júní 2005 00:01 "
Þetta sýnir að almenningur hefur möguleika á að hafa áhrif og stjórnvöld mega ekki hunsa lög og reglur," sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, um nýfallinn dóm Hæstaréttar varðandi umhverfismat álverksmiðju Alcoa. "Ég tel fyrst og fremst ámælisvert að bæði framkvæmdaaðili og eftir atvikum ráðuneyti skuli ekki hafa látið sér héraðsdóm nægja og farið á fullt með nýtt umhverfismat. Ég sé ekki betur en dýrmætum tíma hafi verið sóað í þrjósku og hroka með því að knýja málið upp í Hæstarétt til þess eins að tapa þar," sagði hann og taldi ljóst frá byrjun að ákaflega hæpin aðferðafræði væri að nota umhverfismat annarrar framkvæmdar sem byggði á allt annarri tækni. "Mér finnst umhugsunarefni hvernig yfirvöld taka þessum dómi og láta eins og ekkert sé. Ég skil ekki hvernig hægt er að halda áfram við framkvæmd sem ekki hefur farið í gegn um umhverfismat, en nú er ljóst að ekkert slíkt er til fyrir þessa verksmiðju Alcoa," sagði hann og kvað augljóst að vinna þyrfti nýtt umhverfismat, sem jafnvel gæti leitt til breytinga á hönnun verksmiðjunnar. "Sérstaklega mengunarvarnaþættinum."
Fréttir Innlent Lög og regla Stj.mál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira