Erlent

Varaforseti S-Afríku rekinn

Mbeki, forseti Suður-Afríku, rak Jacob Zuma, varaforseta sinn, úr embætti í dag vegna spillingarmála. Nelson Mandela harmaði að til þessa þyrfti að koma en lýsti jafnframt yfir stuðningi við ákvörðun forsetans. Suma hefur ekki verið fundinn sekur um spillingu en við réttarhöld yfir kaupsýslumanni fyrr í mánuðinum kom fram að hann hefði borið fé á varaforsetann og haft milligöngu um mútugreiðslur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×