Erlent

Uppreisnum svarað af hörku

Ríkisstjórnin í Kirgistan tilkynnti í dag að öllum tilraunum til uppreisnar í landinu yrði svarað af hörku. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að hópur fólks ruddist inn í byggingu sem stjórnin hefur aðsetur sitt í í gær. Um var að ræða stuðningsmenn Askars Akayevs, fyrrverandi forseta Kirgistans, sem hrakinn var frá völdum fyrr á árinu. Lögregla náði þó að rýma húsið tiltölulega fljótt með því að beita táragasi og viðvörunarskotum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×