Fá útrás fyrir keppnisskapið 20. júní 2005 00:01
Þeir sem hafa lagt leið sína í Veggsport heilsuræktina hafa eflaust tekið eftir "skvass-fjölskyldunni miklu" sem þar virðast dvelja öllum stundum. Um er að ræða fimm manna fjölskyldu: Mömmu, pabba og þrjú börn sem öll æfa veggtennis af miklu kappi. Svo miklu reynar að liggur við slagsmálum við matarborðið þegar heim er komið. "Við eigum eiginlega heima hérna í Veggsporti. Það er svo ofboðslega gaman að vera hér, góður andi og frábær aðstaða," segir Brynja Halldórsdóttir, mamman í fjölskyldunni. Hún mætir nær daglega í Veggsport með manni sínum Jóni Þorbjörnssyni og börnunum: Rósu, Þorbirni og Matthíasi. Þau eru öll sammála um að veggtennis sé góð íþrótt. "Þetta er rosa góð líkamsrækt og reynir jafnt á allan líkamann. Maður byggir upp þol og styrkir sig," segir Rósa og mamma hennar bætir því við að það sé líka gaman að fá útrás fyrir keppnisskapið. "Hingað til hefur þetta ekki valdið miklum slagsmálum en það gæti breyst núna þegar krakkarnir eru farnir að ná foreldrunum," segir Brynja og Matthías bendir á að þeir bræðurnir séu alveg að ná þeim. Jón, Brynja og Rósa æfðu áður tennis og segjast hafa kynnst veggtennis í gegnum það. "Maður þarf að æfa tennis dálítið lengi til að geta haft gaman af honum en þetta kemur miklu fyrr í skvassinu. Auðvitað tekur tíma að verða fær og þetta krefst mikillar tækni en maður er tiltölulega fljótur að ná þessu -- alla vega þannig að maður geti spilað sér til skemmtunar," segir Jón en veggtennis virðist njóta vaxandi vinsælda hér á landi. Fjölskyldan spræka spilar hins vegar alls ekki eingöngu til að leika sér. "Hver einasti leikur er eins og úrslitaleikur og það er aldrei gefið eftir," segir Brynja og bætir því við að Rósa sé langbest enda Íslandsmeistari í greininni. Hún spilaði einmitt síðasta úrslitaleik við móður sína og hefur keppt á fjölmörgum mótum innanlands sem utan. Jón hefur einnig náð góðum árangri og að sjálfsögðu stefna strákarnir á toppinn. Þótt keppnisskapið sé mikið og baráttan oft hörð hefur fjölskyldunni tekist að komast stórslysalaust frá íþróttinni. Nokkrar skrámur hér og þar eru ekkert til að kvarta undan. Rósa bendir þó á að meiðsli geti alveg átt sér stað og það sé nauðsynlegt að hita vel upp. "Ég reyni að kenna gömlu hjónunum að hita upp en þau eru frekar löt við það," segir Rósa. Foreldrar hennar malda í móinn með því að benda á að þau hafi margra ára forskot í upphitun. "Maður ætti nú að vera orðinn heitur eftir öll þessi ár," segir Brynja og hlær.
Heilsa Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Aðalsteinn Bergdal er látinn Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Sjá meira