Innlent

Gæsluvarðhald vegna fíkniefna

Lögreglan í Reykjavík handtók manninn á þriðjudagskvöld og við húsleit fundust fíkniefnin. Þótti ljóst að magnið væri það mikið að það gæti ekki einungis verið ætlað til eigin nota. Engin tæki né tól af þeim toga fundust í fórum mannsins. Hann var í haldi lögreglu aðfaranótt miðvikudags og var síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald í tvær vikur meðan rannsókn fer fram. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir manninum var kveðinn upp í fyrradag. Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík staðfesti fíkniefnafundinn og gæsluvarðhaldsúrskurðinn, en kvaðst ekki vilja upplýsa hvaða efni hefðu fundist hjá manninum né hve mikið magn meðan málið væri í rannsóknarmeðferð. Umræddur maður hefur áður komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefnamála



Fleiri fréttir

Sjá meira


×