Erlent

Næsti forsætisráðherra Búlgaríu

Næsti forsætisráðherra Búlgaríu verður að öllum líkindum Sergei Stanishev, formaður Sósíalistaflokksins þar í landi. Sósíalistar unnu sigur í þingkosningunum í Búlgaríu í síðasta mánuði og munu leiða þriggja flokka ríkisstjórn landsins, ef viðræður ganga eftir. Sósíalistaflokkurinn greiddi atkvæði um það í dag hver ætti að leiða flokkinn í hinni fyrirhuguðu samsteypustjórn og hlaut Stanishev mikinn meirihluta atkvæða. Búist er við að hann fái á morgun umboð forseta Búlgaríu til stjórnarmyndunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×