Erlent

Vill Bush færa réttinn til hægri?

Öllum að óvörum tilnefndi Bush Bandaríkjaforseti íhaldssaman, hvítan karl í embætti dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna í gær. Talið er að með þessu vilji hann hnika réttinum til hægri en sumir íhaldsmenn efast um að sá útvaldi sé jafnmikill íhaldsmaður og hermt er. Búist var við því að Bush veldi konu og þá helst óumdeilda og fremur hófsama íhaldskonu til starfans en móðir forsetans, Barbara Bush, eiginkonan Laura og utanríkisráðherrann Condoleezza Rice höfðu allar gert honum ljóst að þær teldu konu sem vildi ekki hrófla við fóstureyðingaumhverfinu vænlegasta kostinn. Bush fór ekki að ráðum þeirra heldur valdi íhaldsmanninn John Roberts. Hann sagði að á fundum sínum með Roberts hafi hann verið mjög hrifinn. Hann sé maður óvenju mikilla afreka og hæfileika. Hann sé góðhjartaður og búi yfir reynslu, visku, sanngirni og kurteisi. Bush hitti svo Roberts aftur að máli yfir morgunverði í morgun og kvaðst sannfærður um að tilnefningin yrði staðfest fljótlega án vandræða. Það er ekki víst að hann hafi hitt naglann á höfuðið þar, því að efasemdarmenn hafa þegar látið til sín heyra: Og það eru ekki einungis frjálslyndir demókratar sem hafa efasemdir heldur lýsti einn af umdeildustu íhaldsmönnum Bandaríkjanna, Ann Coulter, í dag þeirri skoðun sinni að Bush hefði valið rangan mann. Þau lögfræðiálit sem Roberts hefði skilað og hefðu íhaldssaman blæ hefði hann skrifað fyrir hönd umbjóðenda og að ferill hans á dómarabekk væri of stuttur til að draga ályktanir um skoðanir hans. Hæstaréttardómarar í Bandaríkjunum eru áhrifamiklir þar sem það fellur oftar en ekki réttinum í skaut að skera úr um deiluatriði á borð við fóstureyðingar, mannréttindi og jákvæða mismunun. Oftar en ekki hefur rétturinn því í raun markað fordæmi sem jafngilda lagasetningu og hafa haft víðtæk áhrif, stjórnmálamönnum oftar en ekki til mikils ama. Nánar um skipan Roberts í Íslandi í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×