Endurskoða lagalegan grundvöll SÍ 13. október 2005 19:33
Endurskoða þarf lagalegan grundvöll Seðlabankans og gera hann betur í stakk búinn til að fylgjast með umsvifum manna í viðskiptalífinu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sjóðurinn telur að aðgengi bankans að upplýsingum á fjármagnsmarkaði mætti vera töluvert meiri og að harðari viðurlögum, til að tryggja aðgang bankans að upplýsingum um umsvif manna í viðskiptalífinu, verði hægt að beita. Þannig gæti bankinn haft sem gleggsta mynd af hagkerfinu á hverjum tíma en það hafi hann ekki nú. Nauðsynlegt sé fyrir bankann að hafa sem mestar upplýsingar. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum er hlutverk bankans þó ekki að grennslast fyrir um skattamál manna. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur undanfarna mánuði gert úttekt á opinberri tölfræði þjóðarinnar. Samsvarandi úttekt fór fram á upplýsingagjöf fjármálaráðuneytisins og Hagstofu Íslands en lokaniðurstöðu úr úttektinni er ekki að vænta fyrr en í september. Þá hvetur sjóðurinn til aukinnar samvinnu við alþjóðlegar stofnanir til að bregðast við auknum umsvifum fyrirtækja á erlendri grundu. Samkvæmt Seðlabankanum vill sjóðurinn að skerpt sé á efirlitsþættinum hjá bankanum en einnig hjá Hagstofunni. Mál þetta verður tekið til athugunar og segir einn stjórnandi bankans að líklegt sé að bót verði á.
Innlent Viðskipti Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira