Innlent

Vilja prófkjör 4. og 5. nóvember

Á fundi stjórnar Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í dag, var lögð fram tillaga um að prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík verði haldin 4. til 5. nóvember næstkomandi. Samkvæmt prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins er þátttaka í prófkjörinu heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í kjör­dæm­inu sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörs­dagana og þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í kjördæminu við kosning­arn­ar og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjördæminu fyrir lok kjör­fundar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×