Undirbúa atlögu að Alfreð 25. ágúst 2005 00:01 MYND/E.Ól.
Atlaga að Alfreð Þorsteinssyni oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavíkurborg er í undirbúningi fyrir næstu kosningar. Verið er að safna liði í kringum Önnu Kristinsdóttur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og íhugar hún að gefa kost á sér í efsta sæti listans. Fréttastofa Bylgjunnar og Stö'ðvar 2 hefur heimildir fyrir því að fjöldi fólks vinni nú að því að safna liði í kringum Önnu Kristinsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, þar sem hún íhugi að bjóða sig fram gegn Alfreð Þorsteinssyni, forseta borgarráðs. Alfreð hefur setið í borgarstjórn lengi og hefur leitt lista flokksins lengi í borginni. Fréttastofan náði sambandi við Alfreð fyrir hádegisfréttir og bar fréttirnar undir hann. Alfreð sagðist ekkert vita um málið og vildi að öðru leyti ekkert tjá sig. Í ályktun sem stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík norður sendi frá sér nú fyrir fréttir eru stjórnir beggja kjördæmissambandanna í Reykjavík hvattar til að greiða leið ungs og hæfileikaríks fólks í Reykjavík sem sé tilbúið að axla þá ábyrgð að vera í forsvari fyrir Framsóknarflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Björn Ingi Hrafnsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður forsætisráðherra, hvetur til prófkjörs framsóknarmanna í Reykjavík í grein sem birtist í Morgunlaðinu í dag. Í kvöld verður félagsfundur framsóknarmanna í Reykjavík haldinn þar sem formlega verður tekin ákvörðun um endalok R-listasamstarfsins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Erlent Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Innlent „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Erlent Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Fleiri fréttir Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Reyna að hreinsa vatnsbólið á Flateyri eftir hádegi Búið að opna veginn um Ísafjarðardjúp Engin bein tilmæli um breytingar á meðan endurskoðun stendur Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Foreldrafélag MR segist virða kröfur kennara en gagnrýnir verkfall Vegir enn lokaðir á Vestfjörðum Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Móðirin ætlar að áfrýja „Sænska ástandið“ orðið að norrænu Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar Viðhorf til kvenna í leiðtogastörfum versnar Bein útsending: Kosningafundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar Tvö vilja í Endurupptökudóm Kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna blóðmerahalds Sjá meira