Leit út eins og stórbruni 4. september 2005 00:01
Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan hálfsjö í morgun vegna bruna í atvinnuhúsnæði við Fiskislóð í Reykjavík. Einnig þurfti að slökkva eld við Melabúðina á þriðja tímanum í nótt. Þegar slökkviliðið kom á staðinn við Fiskislóð leit út fyrir að um stórbruna væri að ræða. Björn Björnsson, stöðvarstjóri hjá slökkviliðinu, stjórnaði aðgerðum á vettvangi. Hann segir að þegar slökkviliðið hafi komið á vettvang hafi svartan reyk lagt frá húsinu og hann hafi verið kominn út um þakskeggið. Reykkafarar hafi verið sendir inn til að reyna að finna eldi og hann hafi fundist á endanum innst í húsinu. Að sögn Björn er húsnæðið eitt opið rými en önnur hæð í hluta skemmunnar en þetta hafi verið kjaftfullt af reyk. Í ljós kom að eldur logaði í bíl innst á neðri hæðinni. Þegar eldurinn var fundinn tók síðan stuttan tíma að ráða niðurlögum hans, en nokkurn tíma mun taka að reykræsta, enda barst reykurinn um allt húsið. Rjúfa þurfti þakið á nokkrum stöðum til að hleypa mekkinum út, en hann hékk að miklu leyti uppi undir mæni eftir að eldurinn hafði verið slökktur. Engin starfsemi er í húsnæðinu eins og er, en eigendur þess eru að breyta því í verslunar- og þjónustuhúsnæði. Tjónið er engu að síður mikið, aðallega vegna reyks. Og slökkviliðið hafði í nógu að snúast í nótt, því það var kallað út að Melabúðinni í Reykjavík á þriðja tímanum. Þar logaði eldur í lagnaherbergi sem notað er sem geymsla. Vel gekk að slökkva eldinn, en nokkur eldur og reykur bárust með lögnum inn í verslunina. Starfsfólk þreif og ræsti það allt saman í morgun og opnaði verslunin á hádegi eins og ekkert hefði í skorist. Rannsókn á eldsupptökum á báðum stöðum er í höndum rannsóknardeildar
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Sjá meira