Innlent

Tíu vilja í sex efstu sætin

Tíu gefa kost á sér í sex efstu sætin á lista Vinstri - grænna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, en forval á listann fer fram 1. október. Framboðsfrestur vegna forvalsins rann út í dag og þá höfðu eftirtaldir gefið kost á sér: Árni Þór Sigurðsson, Ásta Þorleifsdóttir, Grímur Atlason, Guðný Hildur Magnúsdóttir, Magnús Bergsson, Sóley Tómasdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Ugla Egilsdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson og Þorvaldur Þorvaldsson. Kosningarétt í forvalinu hafa allir félagsmenn í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði sem búsettir eru í Reykjavík, en frestur til að ganga í flokkinn og hafa atkvæðisrétt í forvalinu rennur út föstudaginn 23. september. Sjálft forvalið verður haldið í húsnæði VG, Suðurgötu 3, laugardaginn 1. október frá kl. 9-21.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×