Innlent

Hringlandaháttur sé í ríkisstjórn

Samfylkingin styður ákvörðun ríkisstjórnarinnar um framboð til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en í báðum þingflokkum stjórnarflokkanna eru hins vegar komnar upp efasemdir um réttmæti þess. Formaður Samfylkingarinnar kallar það hringlandahátt ríkisstjórnarmeirihlutans. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna að framboð Íslands stæði. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði nýverið að það biði nýs utanríkisráðherra, Geirs H. Haarde, að taka endanlega ákvörðun í málinu. Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst efasemdum sínum um framboðið, sömuleiðis Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, og Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, kannast ekki við að málið hafi verið afgreitt úr þingflokknum, hvað sem líður yfirlýsingum formannsins hjá Sameinuðu þjóðunum. Hjálmar segir skiptar skoðanir innan þingflokksins um málið enda málið eins og hvert annað mál sem sé að þroskast. Á þeirri vegferð safni menn upplýsingum og þegar þær liggi fyrir taki menn afstöðu. Hann telji að í raun hafi forsætisráðherra verið að árétta það að málinu yrði haldið í þeirri vegferð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að framboð til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hafi ekki verið flokknum á móti skapi. Samfylkingin hafi ákveðið að standa við bakið á stjórninni í þessu máli, að því gefnu að Íslendingar rækju í öryggisráðinu sjálfstæða og öfluga utanríkisstefnu og gerðust talsmenn friðar og þróunar á alþjóðavísu, ekki þannig að Íslendingar væru ósjálfstæðir og hnýttir aftan í stefnu Bandaríkjanna. Hún eigi á hinn bóginn erfitt með að ráða í þá togstreitu sem virðist vera á stjórnarheimilinu vegna málsins. Ingibjörg Sólrún segist ekki þekkja hvernig ráðherrarnir hugsi og komi sér saman um hluti en þetta sé ótrúlegur hringlandaháttur sem einkenni málið. Ákveðið hafi verið að stefna á sætið árið 1998 en svo hrokkið frá því sjö árum seinna. Þessi framvinda lýsi hægriglundroða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×