Innlent

Júlíus Vífill sækist eftir 2. sæti

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann gældi lengi við að bjóða sig fram í fyrsta sætið gegn þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Gísla Marteini Baldurssyni, en niðurstaðan varð að sækja gegn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem einnig sækist eftir öðru sæti á listanum. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi gefur kost á sér í þriðja sætið og enn sem komið er veitir enginn honum samkeppni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×