Sport

Gunnar heldur uppteknum hætti

Gunnar Heiðar Þorvaldsson hélt uppteknum hætti í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, þegar hann skoraði bæði mörk Halmstad í 2-0 sigri á Helsingborg nú síðdegis. Mörkin tvö hjá Gunnari þýða að hann er orðinn markahæstur í sænsku deildinni með 13 mörk, sem er aldeilis frábær árangur hjá honum. Kári Árnason lék í 62 mínútur með Djurgarden sem tapaði 1-0 fyrir Hacken.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×