Sport

Íslenska landsliðið sektað

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur fengið sekt frá Alþjóða knattspyrnusambandinu fyrir fjölda gulra spjalda sem liðið fékk í leikjunum tveimur gegn Króatíu og Búlgaríu í undankeppni HM í byrjun mánaðarins. Íslenska liðið fékk níu áminningar í leikjunum tveimur, fjórar gegn Króatíu og fimm gegn Búlgaríu. Sektin nemur um hálfri milljón króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×