Sport

Gerrard vill meiri ævintýramennsku

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að Chelsea séu langt í frá ósigrandi og vill að lið sitt verði frakkara í sóknarleiknum á sunnudaginn þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni. "Við verðum að taka aðeins meiri áhættu í sóknarleiknum á sunnudaginn og ekki myndi skemma að hafa pínulitla heppni með í för líka, því ef við hefðum verið aðeins heppnari með t.d. dómgæsluna á miðvikudaginn, hefðum við líklega unnið leikinn. Ég veit hvað Jose Mourinho hefur verið að segja um að tímabilið hjá okkur sé komið í vaskinn ef við vinnum ekki, en það er ekki rétt. Það er allt of lítið búið af tímabilinu til að vera að taka svo djúpt í árina," sagði Gerrard.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×