Innlent

Svandís efst í forvali VG

Svandís Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, varð hlutskörpust í forvali flokksins í Reykjavík sem haldið var í gær og mun skipa efsta sætið á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Á kjörskrá voru 750 félagar í hreyfingunni, en um fjögur hundruð tóku þátt í forvalinu. Um sjötíu prósent þeirra, eða 277, greiddu Svandísi atkvæði sitt í fyrsta sæti. Næstur var Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi með 167 atkvæði í tvo fyrstu sætin. Í þriðja sæti hafnaði Þorleifur Gunnlaugsson með 160 atkvæði í fyrstu þrjú sætin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×