Sport

Best á gjörgæslu

Knattspyrnugoðið George Best hefur verið lagður inn á gjörgæslu á Cromwell sjúkrahúsinu í London, samkvæmt fréttum frá BBC. Ekki liggur ljóst fyrir hvað amar að Best, en hann lét græða í sig lifur fyrir þremur árum og hefur verið nokkuð heilsutæpur á síðustu árum. Best er 59 ára gamall og hefur líkami hans þurft að þola ýmislegt í kring um óhóflega áfengisneyslu hans í gegn um árin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×