Innlent

Úrslit eins og til var sáð

„Úrslitin úr kosningum um sameiningu sveitarfélaga urðu eins og til var sáð. Sameiningartillögurnar biðu afhroð og hið sama má segja um þá aðferðafræði sem var viðhöfð og stjórnvöld bera einkum ábyrgð á." Þetta segir Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi á heimasíðu sinni í dag um kosningar um sameiningu sveitarfélaga. Hann segir ennfremur í grein sinni að íbúar sem í gær tóku afstöðu til sameiningartillagnanna höfðu enga ástæðu til að trúa því og treysta að sveitarfélögin yrðu raunverulega efld. Heimasíða Árna Þórs



Fleiri fréttir

Sjá meira


×