Innlent

Barist um völdin hjá Framsókn

Búist er við átökum á aðalfundi Framsóknarfélagsins í syðra kjördæmi Reykjavíkur í kvöld. Rúmlega hundrað nýir félagsmenn hafa bæst í félagið fá mánaðamótum að því er Fréttablaðið greinir frá í dag og munu flestir þeirra stuðningsmenn Björn Inga Hrafnssonar, varaþingmanns og aðstoðarmanns forsætisráðherra. Þar segir að Björn Ingi sé talinn stefna á fyrsta sæti á framboðslista Framsóknarflokksins við næstu borgarstjórnarkosningar og ætli sér að treysta stöðu sína með þessum hætti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×