Innlent

Fleiri vilja Vilhjálm í forystu

Rúm 62 prósent þeirra sem spurðir voru í skoðanakönnun IMG Gallups og tóku afstöðu vilja að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson leiði lista Sjálfstæðsiflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Þá vilja tæp 38 prósent að Gísli Marteinn Baldursson geri það. Mjórra var á mununum þegar aðeins sjálfstæðismenn voru spurðir en þar vildu 53 prósent Vilhjálm og 47 prósent Gísla Martein. Vilhjálmur nýtur því mun meira fylgis utan flokksins en í þeim hópi vilja rúm 70 prósent Vilhjálm en 29 prósent Gísla Martein.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×