Innlent

Vilja banna kanínur í fuglaeyjum

Frjálslyndi flokkurinn ætlar að leggja fram þingmál þar sem gert verður ráð fyrir að lagt verði bann við kanínum í öllum fuglaeyjum umhverfis landið. Þetta kemur fram á heimasíðu Magnúar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns flokksins, þar sem hann vísar meðal annars í skýrslu um kanínupláguna í Heimaey. Þar segir að kanínurnar nagi rætur og grafi út lundaholur sem auki hættu á uppblæstri og jarðvegseyðingu. Svo kunni að fara að jarðvegur skríði hreinlega fram í bröttum hlíðum Heimaeyjar og þar með glatist búsvæði lunda og annarra fugla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×