Sport

Hannes í byrjunarliði Stoke

Hannes Sigurðsson er eini Íslendingurinn sem er í byrjunarliði síns liðs í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag en hann er í liði Stoke sem er 1-0 undir í hálfleik gegn Derby á útivelli. Jóhannes Karl Guðjónsson er á varamannabekk Leicester sem er 0-1 yfir á útivelli gegn Watford og Bjarni Guðjónsson bróðir hans er á bekknum hjá Plymouth sem er 0-1 undir á heimavelli gegn Sheff Wed. Gylfi Einarsson lék síðustu tvær mínúrnar með Leeds sem vann 2-1 sigur á Burnley fyrr  í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×