Innlent

Bótahækkanir gætu fallið niður

Ef hætt verður við að afnema bensínstyrk til öryrkja getur það orðið til þess að hætta verður við hækkanir bóta til öryrkja sem lagðar eru til í fjárlagafrumvarpinu, sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra við upphaf þingfundar. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, hafði hvatt sér hljóðs um málið vegna ályktunar landsfundar Sjálfstæðisflokksins þar sem hvatt var til þess að bensínstyrkurinn yrði ekki felldur niður. Helgi beindi fyrirspurn sinni til Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Hann svaraði því til að heilbrigðisráðherra væri að vinna í málinu en sagði málflutning Helga mótsagnakenndan. Helgi hefði hvatt til aðhalds í ríkisfjármálum en nú væri hann að hvetja til aukinna ríkisútgjalda. Það eru engir auðveldir kostir í hagræðingu eða niðurskurði í heilbrigðisráðuneytinu," sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra. Hann sagðist hafa fundað með forystumönnum Öryrkjabandalags Íslands um málið og færi nú yfir þetta upp á nýtt fyrir 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið. Hann sagði hins vegar ljóst að ef hætt yrði við að fella niður bensínstyrkinn gæti farið svo að hætta yrði við að hækka bætur til öryrkja eins og lagt sé til í fjárlagafrumvarpinu. Hann sagði að bensínstyrkurinn hefði upphaflega verið ætlaður fyrir hreyfihamlaða sen sé orðinn mun almennari og útbreiddari en áður. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, fór hörðum orðum um stjórnarliða. Hann sagði hafa verið ótrúlegt að hlusta á Sjálfstæðismenn á landsfundi sínum og fjármálaráðherra fara fremstan í flokki í að afneita ábyrgð á fjárlagafrumvarpinu. Hann sagði að sér blöskaraði að á sama tíma og ríkisstjórnin færði þeim ríkustu jólagjafir í formi niðurfellingar hátekjuskattsins væri verið að skerða bensínstyrki til hreyfihamlaða. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, var ósátt við að Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra hefði vísað ábyrgðinni á niðurfellingu bensínstyrksins alfarið á Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×