Innlent

Flugbraut á Lönguskerjum fráleit

Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir fráleitt að byggja upp flugvöll á Lönguskerjum. Hann segir í pistli í Morgunkornum VG að uppbygging flugvallar á Lönguskerjum þýddi að áður en yfir lyki væri Skerjafjörður malbikaður nánast stranda á milli. Ögmundur segir flugbraut á þessum slóðum ekki fýsilegan kost og veltir fyrir sér hvort landfylling í Skerjafirði þætti ekki á endanum of mikilvæg til að leggja hana undir flugvöll.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×