Innlent

Mismunað í velferð

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur óskað eftir því að kannað verði hvort unnt sé að verða við kröfum um að vistmenn á Sólvangi í Hafnarfirði verði ekki fleiri en 55 til 60 að tölu og þeim fækki þar með umtalsvert á næstu vikum og mánuðum. Þetta kom fram í utandagskrárumræðum um aðstæður og aðbúnað aldraðra á Alþingi í gær en málshefjandi var Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.

"Aldraðir á Sólvangi hafa allt að helmingi minna rými en hið opinbera gerir kröfur um," sagði Ágúst. Hann bætti við að ríkisstjórnin hefði gefið til kynna að úrbóta væri ekki að vænta fyrr en árið 2008 en það væri allt of seint. "Komið hefur fram að á hjúkrunarheimilinu Skjóli hefur fólk neyðst til þess að ráða sér sérstaka starfskrafta inn á hjúkrunarheimilið fyrir eigin kostnað. En hæstvirtur forsætisráðherra sagði í gær að hann kannaðist ekkert við þessar upplýsingar þrátt fyrir að þær tröllriðu samfélaginu í heila viku... Dæmi eru um að viðkomandi hafi ásamt fjölskyldu unnið allt að 270 klukkustundir á mánuði... Hér erum við komin með staðfestingu á tvöföldu kerfi í velferðarkerfinu."

Ágúst spurði hvort heilbrigðisráðherra sætti sig við tvöfalt kerfi, eitt fyrir betur megandi og annað fyrir hina.

"Svarið er einfalt nei," sagði Jón Kristjánsson. Hann sagði enn fremur að með fækkun á Sólvangi væri von hans að ástandið yrði boðlegt. Hann kvaðst sjá fyrir sér að með fækkun yrði unnt að breyta öllum rýmum í tvíbýli, en allt að fimm manns eru um hvert herbergi nú. Jón sagði einnig að ástandið á Sólvangi yrði að skoða í samhengi við aðra kosti í aðbúnaði aldraðra í Hafnarfirði. Hann kvaðst vita til þess að Hrafnista í Hafnarfirði hefði boðið samstarf við bæjaryfirvöld.

Fram kom einnig í máli heilbrigðisráðherra að daggjöld hafa hækkað um 25 prósent frá 2002 til 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×