Innlent

Líklega prófkjör hjá VG á Akureyri

Frá Akureyri.
Frá Akureyri.

Akureyrarfélag Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs mun að öllum líkindum efna til prófkjörs til að raða í fjögur efstu sæti framboðslista flokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Tillaga þess efnis verður rædd á fundi í félaginu næsta mánudag og er talið líklegt að hún verði samþykkt.

Valgerður Bjarnadóttir hefur setið í bæjarstjórn fyrir VG á þessu kjörtímabili en flokkurinn á einn bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar. Valgerður kveðst ekki búin að ákveða hvort hún gefi áfram kost á sér í efsta sætið en samkvæmt tillögunni um prófkjör er frestur til að skila inn framboðum til 1. desember. Prófkjörið sjálft verður svo haldið um miðjan janúar ef af líkum lætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×