Innlent

Vill banna landeigendum að selja skotveiðiheimild

MYND/GVA

Fuglavinurinn, sjálfstæðismaðurinn og þingmaðurinn Halldór Blöndal vill gera þær breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum, að landeigendum verði bannað að selja skotveiðimönnum heimild til að skjóta fugla á landareignum sínum. Í greinargerð með frumvarpi um málið segir hann að nú sé svo komið að dauðar rjúpur megi ekki ganga kaupum og sölum sem væri þó nær en að selja skotveiðileyfi á þær lifandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×