Innlent

Fjölgað mikið í sjálfstæðisfélaginu í Hafnarfirði fyrir prófkjör

Frá Hafnarfirði.
Frá Hafnarfirði. stefán

Búist er við harðri baráttu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir bæjarstjórnarkosningar á næsta ári sem fram fer í dag. Haraldur Þór Ólason og Valgerður Sigurðardóttur bjóða sig fram til fyrsta sætis en alls slást 16 frambjóðendur um átta efstu sætin á lista sjálfstæðismanna. Kjörstaður var opnaður klukkan tíu í morgun í Víðistaðaskóla og verður opinn til átta í kvöld. Um fimm hundruð manns hafa bæst í flokkinn í aðdraganda prófkjörsins og eru nærri tvö þúsund og sjö hundruð á kjörskrá og fjölgar enn. Fyrstu tölur úr prófkjörinu er væntanlegar skömmu eftir að kjörstað verður lokað en búist er við að endalegar tölu liggi fyrir um klukkan tíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×