Innlent

Borgarráð samþykkir tilboð í Heilsuverndarstöðina

MYND/E.Ól

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að taka tilboði verktakafyrirtækisins Mark-Húsa í Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Þar með er ljóst að fyrirtækið eignast húsið. Mark-Hús buðu 980 milljónir króna í húsið, um fimmtíu milljónum meira en sá sem átti næsthæsta tilboð. Reiknað er með að skrifað verði undir kaupsamningi í næstu viku og þá reiðir kaupandinn fram 200 milljónir króna en eftirstöðvarnar verða greiddar þegar húsið verður afhent í ágúst á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×