VG vill að þing verði kallað saman 29. desember 2005 11:38 Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
Þingflokkur VG hefur sent frá sér ályktun um þá ákvörðun forsætisráðherra að skipa nefnd um úrskurð kjaradóms. Þingflokkurinn telur nauðsynlegt að fresta gildistöku kjaradóms til að skapa svigrúm til umræðu um forsendur ákvörðunar kjaradóms. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri Grænna, segir flokkinn tilbúinn til að tilnefna fulltrúa í nefnd forsætisráðherra vegna niðurstöðu Kjaradóms, að því gefnu að þing verði kallað saman á morgun eða á gamlársdag, til að setja lög sem fresta gildistöku launahækkanna æðstu embættismanna. Verði þing ekki kallað saman segir hann þingflokk Vinstri-grænna verða að koma saman aftur og ákveða þá hvort hann taki þátt í nefndarstörfum. Ályktunin er svohljóðandi: „Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs mun tilnefna fulltrúa í nefnd þá sem forsætisráðherra hefur skýrt frá að hann hyggist skipa vegna nýlegs úrskurðar kjaradóms. Þetta er að því gefnu að þing hafi áður komið saman, það er á morgun, til að afgreiða lög um frestun gildistöku kjaradóms frá 19. desember. Með frestun gildistökunnar skapast nauðsynlegt svigrúm til umræðu um forsendur ákvörðunar kjaradóms og hugsanlegar breytingar á lögum um kjaradóm og kjaranefnd. Mikilvægt er að samhliða nefndarstarfinu taki alþingi til umfjöllunar ört vaxandi launa- og lífskjaramun sem endurspeglast í umræddum dómi og grípi til markvissra aðgerða til að vinna gegn auknu misrétti í landinu."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B Innlent Fleiri fréttir Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Móðirin ætlar að áfrýja „Sænska ástandið“ orðið að norrænu Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar Viðhorf til kvenna í leiðtogastörfum versnar Bein útsending: Kosningafundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar Tvö vilja í Endurupptökudóm Kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna blóðmerahalds Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Ferðaðist frá Flateyri til Ísafjarðar til að fylla á vatnsflöskur Skriðuföll á Vestfjörðum og lokað fyrir vatnið á Flateyri Neysluvatnið í Bolungarvík drullugt og í ólagi Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Loka fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðu Opna sundlaugina í Grindavík á ný Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Sjá meira