Tekin á stolnum bíl fullum af þýfi 20. september 2006 02:00 Félagsheimilið Árnes Brotist var inn í félagsheimilið í gær og stolið þaðan ýmsum verðmætum.
Tveir piltar um tvítugt og sextán ára stúlka voru handtekin í gær vegna gruns um innbrot í félagsheimilið Árnes en þaðan var stolið fartölvum, flatskjá, skjávarpa og töluverðu af áfengi. Lögreglan á Selfossi handtók ungmennin og við leit í bifreið þeirra fannst þýfi úr innbrotinu í Árnesi. Þremenningarnir voru teknir til yfirheyrslu og kom í ljós að þau höfðu stolið bílnum á Húsavík aðfaranótt sunnudagsins. Þau tóku stefnuna suður og að sögn lögreglunnar eru þau grunuð um að hafa brotist inn í að minnsta fjóra sumarbústaði í Borgarfirði auk þess að valda skemmdum. Þá fann lögregla tæki og tól til fíkniefnaneyslu í fyrrnefndum bústöðum. Lögreglan í Borgarnesi útilokar ekki að þremenningarnir hafi brotist inn í fleiri sumarbústaði því iðulega berist ekki tilkynningar um slíkt fyrr en eigendur komi að bústöðum sínum. Lögreglan í Reykjavík hafði lýst eftir stúlkunni. Hún er ólögráða og hafði strokið að heiman. Piltarnir tveir eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eiga að baki sakaferil, hafa verið teknir við innbrot og brotið fíkniefnalög. Þá staðfestir lögreglan í Kópavogi að piltarnir liggi undir grun um að hafa framið afbrot í Kópavogi. Samstarf verði milli lögregluembættanna við lausn þeirra mála.
Innlent Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir E. coli greindist í neysluvatni íbúa Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Sjá meira