Þrjú kíló af silfurpeningum 31. október 2006 07:45 Víkingaskip Þeir hafa kannski ferðast á svona skipi, víkingarnir sem áttu fjársjóðinn sem fannst í Gautlandi í síðustu viku.
Tveir bræður fundu stóran fjársjóð frá víkingatímum á Suður-Gautlandi, nærri Sundre-kirkju, í síðustu viku, kom fram á fréttavef Dagens Nyheter í gær. Að sögn sérfræðinga er um að ræða þrjú kíló af silfurpeningum, líklega frá tíundu öld. „Þegar ég sá þetta hugsaði ég, „Vá.“ Ég sá að þetta var arabísk silfurmynt svo ég skildi strax að það var eitthvað í þessu,“ sagði Edvin Svanborg, tvítugur sagnfræðinemi, en hann og sautján ára bróðir hans, Arvid, voru að ryðja land fyrir nágranna sinn þegar þeir rákust á peningana. „Við grófum upp 129 eða 130 peninga á hálftíma,“ sagði Edvin. Bræðurnir fóru með fjársjóðinn til landeigandans og saman tilkynntu þeir svo fundinn til yfirvalda, sem tóku svo við uppgreftrinum. Enn sem komið er hafa fundist um 1.100 peningar og nokkur armbönd. Munirnir eru flestir í nokkuð góðu ástandi, jafnvel þó að kanínur hafi reynt að gæða sér á nokkrum peningum, segir í frétt sænska blaðsins. Svanborg-bræðurnir munu fá fundarlaun frá sænska ríkinu, en hversu há sú upphæð verður vita þeir ekki fyrr en uppgreftrinum lýkur og ljóst er hversu stór fjársjóðurinn er.
Erlent Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Fleiri fréttir Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Sjá meira