Erlent

Að­gerð páfa gekk vel

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Leó páfi tilkynnti um fyrirhugaða aðgerðina á sunnudaginn.
Leó páfi tilkynnti um fyrirhugaða aðgerðina á sunnudaginn. Getty

Aðgerð Leós páfa til að fjarlægja hnút í lunga gekk vel, að sögn Páfagarðs. Páfi er kominn aftur á sjúkrastofu sína en öllum verkefnum hans hefur verið frestað fram til 20. október meðan hann jafnar sig.

Páfi, sem er 71 árs, gekkst undir aðgerðina á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm í dag. Hnúturinn fannst við reglulega læknisskoðun.

„Aðgerðinni lauk farsællega, á tilsettum tíma og eins og áætlað var, og heilagur faðir sneri aftur í herbergi sitt,“ segir í yfirlýsingu Páfagarðs, að því er breska ríkisútvarpið greinir frá.

Páfi tilkynnti sjálfur um fyrirhugaða aðgerð þegar hann ávarpaði fólk á Péturstorginu á sunnudaginn var. Hann sagði hnútinn lítinn og að hann hefði fundist á mjög snemma. Læknar hefðu þó ráðlagt honum að láta fjarlægja hann.

Pietro Parolin, kardináli og eins konar utanríkisráðherra Páfagarðs, viðurkenndi við blaðamenn í dag að fréttirnar af aðgerðinni hefðu komið sér í opna skjöldu.

„Hef ég áhyggjur? Já, því ég átti sannarlega ekki von á neinu þessu líku,“ sagði hann.

Parolin sagði kardínálana þó hafa tekið eftir því hve rólegur páfi væri og þeir væru vongóðir um bata hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×