Ný lög og sálmar 3. nóvember 2006 16:30 Sesselja Kristjánsdóttir messósópran syngur einsöng með Dómkórnum í kvöld. MYND/Valli
Tónlistardagar Dómkirkjunnar í Reykjavík eru árleg tónlistarveisla sem haldin er í kringum vígsluafmæli kirkjunnar síðustu helgina í október og fram í miðjan nóvember. Tónlistardagarnir eru nú haldnir í 25. skipti en í ár eru liðin 210 ár frá því að Dómkirkjan var vígð. Í kvöld verða all sérstakir tónleikar í kirkjunni. Dómkórinn leitaði til þeirra tónskálda sem árum saman hafa samið verk fyrir kórinn og búsett eru hér á landi, en kórinn hefur ekki síður leitað til erlendra tónskálda. Erindið var þetta árið að fá til flutnings sálma eða stutt kórlög. Mörg falleg lög bárust og verða þau flutt í kvöld á tónleikum í Dómkirkjunni og hefjast tónleikarnir kl. 20. Tónskáldin sem eiga ný verk á þessum tónleikum eru: Þorkell Sigurbjörnsson, Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson, Jónas Tómasson, Jón Ásgeirsson, Mist Þorkelsdóttir, Tryggvi M. Baldursson og Jórunn Viðar. Auk þess verða flutt eldri verk eftir Jón Nordal, Jón Þórarinsson, Harald Sveinbjörnsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Auk Dómkórsins eru flytjendur stjórnandi kórsins, Marteinn H. Friðriksson, sem leikur á orgel, og Sesselja Kristjánsdóttir messósópran. Á morgun kl. 17 verða síðan tónleikar á kirkjulofti Dómkirkjunnar en þetta mun vera í fyrsta skipti sem opinberir tónleikar fara fram þar. Yfirskrift þeirra er „Okkur til gleði og guði til dýrðar“. Sungin verða gömul íslensk lög og leikið á langspil
Menning Mest lesið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Lífið Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Lífið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Tíska og hönnun Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Lífið Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Lífið Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Fleiri fréttir Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira