Hagnaður FL Group 17,3 milljarðar 10. mars 2006 14:11
Hagnaður FL Group fyrir skatta árið 2005 var rúmir 20,5 milljarðar króna samanborið við rúma 4,3 milljarða krónur árið áður. Eftir skatta var var hagnaður fyrirtækisins tæpir 17,3 milljarðar króna, samanborið við tæpa 3,6 milljarða króna árið áður. Þetta er besta afkoma fyrirtækisins fram til þessa. Arðsemi eiginfjár nam 55,2% á tímabilinu. Afkoma af fjárfestingastarfsemi nam tæpum 18,4 milljörðum króna fyrir skatta, og þar af var hagnaður á fjórða ársfjórðungi 13,3 milljarðar króna, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. Árið 2005 markaði tímamót í sögu FL Group, þar sem 44 milljarða króna hlutafjáraukningu bar hæst. En auk þess sem gengið var frá kaupum á Bláfugli og Flugflutningum og var samningur undirritaður um kaup á lággjaldafélaginu Sterling. Í tilkynningunni er haft eftir Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group, sem segir að árangurinn endurspeglist af þeim breytingum sem gerðar hafi verið á starfsemi fyrirtækisins. „Með hlutafjárútboðinu í nóvember síðastliðnum var stigið mikilvægt skref í að gera FL Group að öflugu fjárfestingafélagi og er stærsti hluti afkomunnar nú af fjárfestingastarfsemi félagsins. Vel hefur tekist til við að framkvæma breytingarnar og byggja upp öflugan hóp starfsmanna sem nær árangri. Að sama skapi var afkoma rekstrarfélaganna góð sem er mjög ánægjulegt í ljósi þess að eldsneytisverð hefur verið mjög hátt og gengi íslensku krónunnar óhagstætt. Rekstrarfélögin hafa því sýnt mikinn styrk í að aðlaga reksturinn hratt og örugglega að breytilegum ytri aðstæðum," segir Hannes.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Viðskipti innlent Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira